Gianni Infantino, forseti Fifa, hugnast þess að aflétta banni Rússa frá alþjóðlegum keppnum á vegum FIFA og UEFA. Hann segir að bannið hafi engu skilað nema auknu hatri og gremju.
Landslið og félagslið Rússlands voru sett í bann frá öllum keppnum á vegum FIFA og UEFA í febrúar 2022 í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.
Eftir að bannið var sett á Rússland hafa rússnesk landslið og félagslið ekki getað tekið þátt í HM 2022 né EM 2024 á vegum UEFA, og landið verður heldur ekki með á komandi heimsmeistaramóti.

Infantino hlaut rússnesku Vináttuorðuna frá forseta Rússlands, Vladimir Pútín, eftir að landið hélt heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2018.
Íþróttamálaráðherra Úkraínu gagnrýnir Infantino harðlega og kallar ummæli hans ábyrgðarlaus og barnaleg eftir að hann sagði að FIFA myndi skoða að aflétta banni Rússlands.
Athugasemdir