Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 15:13
Elvar Geir Magnússon
Man Utd eyðir mestu en grannarnir eru í sjöunda sæti - Guardiola með kaldhæðnislegt grín
Pep Guardiola, stjóri City.
Pep Guardiola, stjóri City.
Mynd: EPA
Á lista Transfermarkt er Manchester United á toppi enskra úrvalsdeildarfélaga yfir nettó eyðslu á leikmannamarkaðnum síðustu fimm ár, þ.e.a.s. hversu miklu félögin eyða í leikmannakaup að frádregnum sölum.

Áhugavert er að Manchester City er aðeins í sjöunda sæti á þessum lista. Annan janúargluggann í röð var City það félag sem keypti leikmenn fyrir hæstu upphæðina en á móti hefur félagið verið öflugt í að fá inn pening með því að selja leikmenn.

Pep Guardiola, stjóri City, gerði góðlátlegt grín að þessu á fréttamannafundi.

„Ég er smá leiður og fúll yfir því að við séum bara í sjöunda sæti. Ég vil vera númer eitt, ég skil ekki af hverju félagið eyðir ekki meiri pening. Ég er nokkuð fúll út í þá," sagði Guardiola í kaldhæðni.

„Við unnum svona marga titla á sínum tíma því við eyddum svo miklum pening, nú eru sex lið sem verða að vinna úrvalsdeildina, Meistaradeildina og bikarana því þeir hafa eytt meiru síðustu fimm ár. Þetta er staðreynd, ekki skoðun."

Nettó eyðsla síðustu fimm ár:
Manchester United (£675m)
Arsenal (£663m)
Chelsea (£651m)
Tottenham (£574m)
Newcastle (£424m)
Liverpool (£420m)
(Transfermarkt)


Athugasemdir
banner
banner