Styrktarþjálfarinn Arnór Snær Guðmundsson hefur skrifað undir nýjan samning við norska félagið Sandefjord til ársins 2030. Hann hefur verið styrktarþjálfari liðsins frá árinu 2022.
Arnór er jafnframt styrktarþjálfari íslenska landsliðsins og hefur gengt þeirri stöðu undanfarin fjögur ár.
Arnór er jafnframt styrktarþjálfari íslenska landsliðsins og hefur gengt þeirri stöðu undanfarin fjögur ár.
Arnór, sem er 32 ára gamall, lagði skóna á hilluna fyrir rúmum sex árum eftir að hafa spilað fyrir Aftureldingu, Kára og ÍA.
Hann gerðist svo bæði aðstoðar- og styrktarþjálfari ÍA í kjölfarið en hefur undanfarin ár starfað í Noregi. Hann var fyrst hjá Bodö/Glimt en færði sig svo yfir til Sandefjord.
Í tilkynningu félagsins segir að Arnór hafi nýverið lokið UEFA Fitness A þjálfaragráðu.
Sandefjord endaði í fimmta sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, þar sem Stefán Ingi Sigurðarson fór á kostum og skoraði 15 mörk. Í gær var Stefán kynntur sem nýr leikmaður Go Ahead Eagles í Hollandi.
Athugasemdir



