Íris Gunnarsdóttir og Guðmundur Örn Jóhannsson, foreldrar Jóhanns Bergs Guðmundssonar, hafa fylgt íslenska liðinu eftir á EM í Frakklandi. Þau voru í sæluvímu eftir sigurinn á Englandi á mánudag.
„Við grétum eftir leikinn. Maður missti öll tök á tilfinningum," sagði Guðmundur.
„Þessi gleðitár voru ólýsanleg tilfinning. Þeir gera okkur öll svo stolt. Það er líka ótrúlegt að sjá þessa samkennd hjá íslensku þjóðinni. Maður upplifir þetta bara einu sinni held ég," bætti Íris við.

Íris og Guðmundur eru stolt af Jóhanni sem er að láta æskudrauminn rætast.
„Þegar hann byrjaði að labba fékk hann bolta og hann hefur ekki sleppt honum síðan. Þegar hann var 5-6 ára gamall var hann spurður að því hvort hann vildi ekki vera lögga, slökkviliðsmaður eða eitthvað þegar hann yrði stór en hann sagðist alltaf ætla að verða atvinnumaður í fótbolta."
Guðmundur og Íris hafa verið mikið í viðtölum hjá erlendum fjölmiðlum undanfarna daga, þar á meðal hjá frönskum, sænskum og rússneskum fjölmiðlum.
Þau hafa verið úti allt mótið og vonast til að vera í viku í viðbót. „Eigum við ekki að segja að það verði Ísland-Wales í úrslitum," sagði Guðmundur.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar svara þau spurningunni hvaðan Jóhann fékk fótboltahæfileikana.