Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 06. febrúar 2026 19:13
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Leeds og Forest: Okafor og Ortega byrja
Mynd: Leeds
Mynd: EPA
Leeds United tekur á móti Nottingham Forest í spennandi slag í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnar.

Liðin mætast í fyrsta leik helgarinnar en þau eru jöfn á stigum sem stendur, með 26 stig eftir 24 umferðir - sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Daniel Farke gerir eina breytingu á liði heimamanna eftir stórt tap á heimavelli gegn toppliði Arsenal í síðustu umferð. Noah Okafor kemur inn í liðið fyrir Anton Stach sem er ekki í hópnum.

Daniel James og Felix Nmecha, sem voru ekki í hóp gegn Arsenal, setjast á bekkinn en Facundo Buonanotte dettur úr hópnum.

Sean Dyche breytir þremur byrjunarliðsmönnum eftir jafntefli gegn Crystal Palace í síðasta leik, en Forest hefur átt frábæru gengi að fagna síðustu vikur þar sem liðið er búið að næla sér í átta stig úr fjórum leikjum til að fjarlægjast fallbaráttuna.

Stefan Ortega, sem er nýkominn úr röðum Man City, spilar sinn fyrsta leik fyrir félagið. Hann kemur í byrjunarliðið fyrir Matz Sels sem er að glíma við nárameiðsli.

Morato tekur þá stöðu Murillo í hjarta varnarinnar og byrjar hinn 19 ára gamli Zach Abbott í vinstri bakverði í fjarveru Neco Williams sem er í leikbanni.

Lorenzo Lucca og Luca Netz, nýir leikmenn Forest, eru á bekknum.

Leeds: Darlow, Bogle, Gudmundsson, Rodon, Struijk, Justin, Ampadu, Gruev, Aaronson, Okafor, Calvert-Lewin.
Varamenn: Perri, Byram, Bornauw, Longstaff, Tanaka, James, Gnonto, Nmecha, Piroe.

Forest: Ortega, Aina, Milenkovic, Morato, Abbott, Sangare, Anderson, Hudson-Odoi, Gibbs-White, Dominguez, Jesus.
Varamenn: Gunn, Awoniyi, Ndoye, Lucca, Hutchinson, Yates, Jair Cunha, McAtee, Netz.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner