Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   fös 06. febrúar 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fulham endurvekur viðræður um Pepi
Mynd: EPA
Fulham hefur endurvakið viðræður við hollenska félagið PSV Eindhoven um bandaríska sóknarmanninn Ricardo Pepi.

Lundúnafélagið gerði heiðarlega tilraun til þess að kaupa Pepi frá PSV undir lok janúargluggans en hollenska félagið hafnaði öllum tilboðum.

Síðasta tilboð Fulham var í kringum 33 milljónir punda, en PSV taldi sig ekki geta fundið framherja í stað hans á þessum skamma tíma sem það hafði fyrir lok gluggans.

Á sama vildi félagið ekki selja hann núna þegar markaðsvirði hans gæti hækkað fyrir sumargluggann.

Ekkert varð úr félagaskiptunum en Fabrizio Romano segir að Fulham hafi ekki gefist upp á að fá hann. Það sé komið aftur í viðræður við PSV og leikmanninn um að fá hann snemma í sumar.

Þessi 23 ára gamli Bandaríkjamaður er kominn með 11 mörk í 22 leikjum í hollensku deildinni á þessari leiktíð og gert 13 mörk í 34 A-landsleikjum.
Athugasemdir
banner
banner