Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 23:39
Ívan Guðjón Baldursson
Fyrrum leikmaður Aftureldingar/Fram á forsíðu Sports Illustrated
Kvenaboltinn
Mynd: Sports Illustrated
Brittany Mahomes, sem áður hét Brittany Matthews, prýðir forsíðu vefútgáfu sundfatatímarits Sports Illustrated í febrúar.

Í vefútgáfunni er sviðsljósið sett á eiginkonur frægra amerískra fótboltamanna sem hafa verið að gera góða hluti á hinum ýmsu sviðum, en þeirra á meðal er meðal annars poppstjarnan Normani.

Lesendur Fótbolta.net gætu kannast við Brittany eftir dvöl hennar í íslenska boltanum þar sem hún lék með Aftureldingu/Fram í 2. deild kvenna sumarið 2017 og skoraði þar tvö mörk í fimm leikjum.

Hún hjálpaði Aftureldingu að vinna deildina en hætti eftir það í atvinnumennsku og flutti heim til Bandaríkjanna til að vera með verðandi eiginmanni sínum Patrick Mahomes, sem er í dag ein af skærustu stjörnum NFL deildarinnar.

Brittany er í dag þriggja barna móðir. Hún er ötull talsmaður mikilvægi kvennaíþrótta og vonast til að geta veitt öðrum konum innblástur til að hugsa vel um líkamann sinn og finna fyrir sjálfsöryggi eftir barnsburð.


Athugasemdir
banner