Hákon Arnar Haraldsson var á sínum stað í byrjunarliði Lille er liðið heimsótti botnlið Metz í efstu deild í Frakklandi.
Lille var talsvert sterkari aðilinn en tókst ekki að koma boltanum í netið svo niðurstaðan varð markalaust jafntefli.
Hákon lék fyrstu 70 mínútur leiksins áður en honum var skipt af velli.
Lille hefur verið að ganga hörmulega að undanförnu og var búið að tapa fjórum deildarleikjum í röð fyrir jafntefli kvöldsins.
Þrátt fyrir slæmt gengi síðustu vikna er liðið í fimmta sæti Ligue 1, með 33 stig eftir 21 umferð. Metz er á botninum með 13 stig.
Í C-deildinni á Ítalíu kom Sveinn Aron Guðjohnsen inn af bekknum í markalausu jafntefli hjá Cavese gegn Latina.
Cavese var lakara liðið og slapp úr þessari viðureign með stig. Sveinn Aron og félagar eru í fallbaráttu með 24 stig eftir 25 umferðir.
Að lokum var Helgi Fróði Ingason ónotaður varamaður í sigri Helmond gegn Den Bosch í næstefstu deild í Hollandi.
Helmond er með 29 stig eftir 26 umferðir, sjö stigum frá umspilssæti fyrir efstu deild.
Metz 0 - 0 Lille
Latina 0 - 0 Cavese
Helmond 2 - 0 Den Bosch
Athugasemdir



