Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 06. febrúar 2026 16:30
Elvar Geir Magnússon
Lið eru farin að læra inn á Woltemade
Nick Woltemade kom frá Stuttgart síðasta sumar.
Nick Woltemade kom frá Stuttgart síðasta sumar.
Mynd: EPA
Þýski framherjinn Nick Woltemade er kominn með níu mörk fyrir Newcastle á tímabilinu en hefur ekki skorað síðan hann gerði tvö í jafntefli gegn Newcastle 20. desember.

Eddie Howe, stjóri Newcastle, segir að lið séu farin að læra inn á þennan 23 ára leikmann sem kom frá Stuttgart síðasta sumar.

„Hann er ungur leikmaður í nýrri deild. Hann byrjaði gríðarlega vel og ég held að allir héldu að það myndi halda áfram þannig. Það er samt mjög erfitt að halda þessu skriði," segir Howe.

„Hann er að læra inn á áskoranir ensku úrvalsdeildarinnar, hraðann, ákefðina og líkamlegu baráttuna. Svo eru lið farin að læra inn á hann og það er hans stærsta áskorun, lið skilja hvernig hann spilar og hvað hann leitast eftir að gera svo hann þarf að finna aðrar lausnir."

„Hann á verk að vinna en hann hefur gert allt með svo góðu hugarfari og á réttan hátt. Hann þarf að halda því áfram til að njóta velgengni."

Newcastle tekur á móti Brentford í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Newcastle verður án Anthony Gordon og Lewis Miley en Bruno Guimaraes gæti tekið þátt.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner