Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 09:00
Elvar Geir Magnússon
Sonur Rooney með samningstilboð frá Man Utd
Kai Rooney er í unglingastarfi Man Utd.
Kai Rooney er í unglingastarfi Man Utd.
Mynd: instagram/kairooney.10
Manchester United hefur boðið Kai Rooney, syni goðsagnarinnar Wayne Rooney, nýjan samning. Kai er sextán ára gamall og er með tilboð upp á 8,3 milljónir íslenskra króna í árslaun.

Samningurinn felur í sér að Kai, sem hefur verið iðinn við markaskorun fyrir yngri lið United, fái atvinnumannasamning um leið og hann verður 17 ára.

United býður fjórtán bestu táningum félagsins nýjan samning og Kai er einn af þeim. Í þessum hópi má einnig finna Jacey Carrick, son Michael Carrick bráðabirgðastjóra.

Kai Rooney lék sinn fyrsta leik á Old Trafford í síðasta mánuði þegar hann spilaði í bikarkeppni unglingaliða á vellinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner