Celta Vigo 1 - 2 Osasuna
0-1 Ante Budimir ('35 )
1-1 Borja Iglesias ('53 , víti)
1-2 Raul Garcia ('79 )
0-1 Ante Budimir ('35 )
1-1 Borja Iglesias ('53 , víti)
1-2 Raul Garcia ('79 )
Celta Vigo og Osasuna áttust við í eina leik kvöldsins og fyrsta leik helgarinnar í efstu deild spænska boltans.
Celta gat komið sér upp í evrópusæti með sigri á heimavelli en lenti undir í fyrri hálfleik. Heimamenn í Vigo voru sterkari aðilinn en Ante Budimir skoraði úr eina færi gestanna fyrir leikhlé.
Borja Iglesias jafnaði metin úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik eftir að hendi var dæmd og reyndist seinni hálfleikurinn afar spennandi. Bæði lið fengu færi til að skora en það var Raúl García sem réði úrslitum með marki á 79. mínútu eftir langa sókn Osasuna þar sem heimamenn í Vigo áttu í stökustu vandræðum með að hreinsa boltann úr eigin vítateig í kjölfar hornspyrnu.
Lokatölur 1-2 og er Celta aðeins búið að ná í eitt stig úr síðustu þremur leikjum eftir þetta tap. Liðið er áfram einu stigi frá evrópusæti.
Osasuna er með tíu stig úr síðustu fjórum umferðum og er núna aðeins fjórum stigum á eftir Celta í evrópubaráttunni.
Athugasemdir


