Union Berlin 1 - 1 Eintracht Frankfurt
0-1 Nathaniel Brown ('84 )
1-1 Leopold Querfeld ('87 , víti)
Rautt spjald: Oscar Hojlund, Eintracht Frankfurt ('86)
0-1 Nathaniel Brown ('84 )
1-1 Leopold Querfeld ('87 , víti)
Rautt spjald: Oscar Hojlund, Eintracht Frankfurt ('86)
Union Berlin og Eintracht Frankfurt áttust við í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild þýska boltans og hélst staðan markalaus allt þar til á lokakaflanum.
Það var lítið sem ekkert að frétta í afar lokuðum leik en Nathaniel Brown náði forystunni fyrir gestina frá Frankfurt á lokakaflanum með frábæru skoti eftir að hafa fengið boltann skoppandi til sín við vítateigslínuna.
Það leið þó ekki á löngu þar til heimamenn í Berlín svöruðu. Oscar Höjlund, yngri bróðir Rasmus, gerðist sekur um slæm mistök þegar hann braut af sér innan vítateigs. Hann missti af manninum sínum og fékk seinna gula spjaldið sitt fyrir brotið.
Leopold Querfeld var heppinn að skora af vítapunktinum þar sem boltinn rétt smeygðist undir markvörð gestanna, en markið gildir og urðu lokatölur 1-1.
Þrjú stig skilja liðin að um miðja deild, þar sem Frankfurt er með 28 stig eftir 21 umferð - sjö stigum frá Evrópusæti. Union Berlin er að sama skapi sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Athugasemdir




