Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Van Ginkel leggur skóna á hilluna
Van Ginkel vann hollensku deildina tvisvar með PSV Eindhoven og bikarinn einu sinni.
Van Ginkel vann hollensku deildina tvisvar með PSV Eindhoven og bikarinn einu sinni.
Mynd: EPA
Marco van Ginkel, sem var samningsbundinn Chelsea í átta ár, er búinn að leggja skóna á hilluna aðeins 33 ára gamall.

Miðjumaðurinn kom aðeins við sögu í fjórum leikjum með Chelsea á dvöl sinni þar sem einkenndist af miklum meiðslavandræðum sem lituðu feril leikmannsins.

Van Ginkel þótti gríðarlega mikið efni og var lykilmaður í U21 landsliði Hollands en hann sleit krossband eftir um ellefu vikur í herbúðum Chelsea.

Hann átti eftir að leika fyrir AC Milan, Stoke City og PSV Eindhoven á láni en var mikið frá vegna meiðsla. Eftir að samningurinn rann út hjá Chelsea í júní 2021 lék Van Ginkel fyrir PSV, uppeldisfélagið Vitesse og nú síðast Boavista í Portúgal.

Van Ginkel sýndi frábærar rispur hjá PSV og eftir endurkomuna til Vitesse en lék aðeins rétt rúma 200 keppnisleiki í heildina eftir upphaflegu krossbandsslitin.



Athugasemdir
banner
banner