Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, var að vonum ánægður eftir 4-0 sigur gegn Liechtenstein í bongóblíðu á Laugardalsvelli í kvöld.
Leikurinn var sá síðasti sem Ísland spilar áður en liðið hefur leik á EM 2016 í Portúgal eftir rúma viku.
Leikurinn var sá síðasti sem Ísland spilar áður en liðið hefur leik á EM 2016 í Portúgal eftir rúma viku.
Lestu um leikinn: Ísland 4 - 0 Liechtenstein
„Við náðum að æfa ýmislegt sem við þurfum kannski að nota úti í Frakklandi og þetta var kjörinn leikur fyrir það. Þetta var kannski ekki erfiðasti andstæðingurinn, en bara fínt fyrir okkur upp á sjálfstraustið að gera," sagði Aron Einar eftir leikinn.
„Ég held við höfum sýnt fókus allan leikinn og við höfum lært það að við sem Íslendingar getum ekki slappað af í hvaða leik sem er, við erum bara ekki það góðir. Við erum góðir þegar við erum undir pressu og erum að fókusera á það. Mér fannst hausinn vera í lagi og held þetta hafi smollið saman á æfingu í gær."
Aron Einar segir að það hafi verið gott fyrir sjálfstraustið að vinna síðasta leik fyrir EM og að sömuleiðis hafi verið ánægjulegt að vinna síðasta leikinn á Laugardalsvelli undir stjórn Lars Lagerback.
„Hvað er orðið langt síðan við töpuðum á heimavelli? Það er orðið mjög langt síðan og ég veit að Lars hefði ekki viljað enda á tapleik. Honum þykir vænt um íslensku áhorfendana sem hafa stutt við bakið á okkur og það sást þarna í lokin, enda fær gamli maðurinn treyju frá Tólfunni og skemmtilegt fyrir hann," sagði Aron Einar.
„Við verðum að vera 100% í kollinum og hræðast ekki neitt."
























