Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 07. febrúar 2026 09:10
Elvar Geir Magnússon
Carrick ýjar að því að hann vilji stöðuna til frambúðar
Michael Carrick var ráðinn út tímabilið
Michael Carrick var ráðinn út tímabilið
Mynd: EPA
Dorgu verður frá í tíu vikur vegna meiðsla sinna.
Dorgu verður frá í tíu vikur vegna meiðsla sinna.
Mynd: EPA
„Ég er að elska verkefnið mitt hérna. Mér líður eins og ég sé heima hjá mér. En ég skil stöðuna algjörlega og fer ekki fram úr mér," segir Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United. Liðið hefur unnið alla þrjá leikina undir hans stjórn.

Carrick hefur gefið fyrstu vísbendingar um það að hann vilji halda áfram að stýra Manchester United eftir tímabilið. Hann er ráðinn út tímabilið og hefur reynt að forðast alla umræðu um langtímaframtíð sína á Old Trafford.

„Ólíkt Rúben Amorim þá er það ekki í eðli Carrick að gefa fyrirsagnir eða ræða viðkvæm mál við fjölmiðla, mál sem yfirmenn hans vilja líklega frekar halda innanbúðar," segir Simon Stone hjá BBC.

Stone telur þó að Carrick hafi gefið ákveðnar vísbendingar um sinn hug þegar hann var spurður út í áætlanir Manchester United fyrir næsta félagaskiptaglugga. Þá sagði Carrick:

„Það hefur ekkert breyst. Ég geri mér alveg grein fyrir mínu hlutverki hér. Ég vil ná árangri og ég vil að félagið muni halda áfram að ná árangri eftir tímabilið. Sama hvort ég verði áfram eða einhver annar taki við. Ég get ekki stýrt því sem gerist, en þetta snýst um að bæta Manchester United og gera liðið sterkara," sagði Carrick.

Manchester United mætir Tottenham í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þá má það fylgja að Carrick staðfesti það á fréttamannafundinum fyrir leikinn að Patrick Dorgu gæti verið frá í tíu vikur vegna meiðslana aftan í læri sem hann hlaut gegn Arsenal í síðasta mánuði.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Kemst Liverpool áfram á móti Galatasaray?
Athugasemdir
banner