Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 07. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Mikael og Albert á heimavelli
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru aðeins tveir leikir í ítalska boltanum í dag þar sem viðureign Milan gegn Como hefur verið færð útaf opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna.

Mikael Egill Ellertsson og félagar í Genoa taka á móti Ítalíumeisturum Napoli í fyrri leik dagsins og geta búist við afar erfiðum leik.

Genoa er í neðri hluta Serie A deildarinnar með 23 stig eftir 23 umferðir, sex stigum fyrir ofan fallsvæðið. Napoli situr í þriðja sæti með 46 stig og þarf sigur til að reyna að blanda sér aftur í titilbaráttuna eftir að hafa verið slegið úr leik í Meistaradeild Evrópu.

Í kvöld eigast Fiorentina og Torino svo við í neðri hlutanum þar sem Albert Guðmundsson og félagar virðast vera að vakna aftur til lífsins eftir hörmulegan fyrri hluta tímabils.

Fiorentina þarf á sigri að halda í fallbaráttunni gegn andstæðingum sem hafa verið að spila illa upp á síðkastið, en Torino er þrátt fyrir slakt gengi síðustu vikna heilum níu stigum frá fallsæti.

Albert er fastamaður í liði Fiorentina og hefur Mikael byrjað síðustu fjóra leiki í röð hjá Genoa.

Leikir dagsins
17:00 Genoa - Napoli
19:45 Fiorentina - Torino
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner
banner