Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 07. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Barca á blússandi siglingu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
23. umferð spænska deildartímabilsins heldur áfram í dag þegar Rayo Vallecano mætir til leiks í fallbaráttuslag gegn botnliði Real Oviedo.

Vallecano er sex stigum fyrir ofan Oviedo og getur komist úr fallsæti með sigri.

Spánarmeistarar Barcelona taka svo á móti Mallorca sem er að eiga slakt tímabil og er aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Börsungar eru í harðri titilbaráttu við Real Madrid þar sem eitt stig skilur liðin að. Lærlingar Hansi Flick eru búnir að sigra 16 af síðustu 17 leikjum sínum í öllum keppnum.

Sevilla spilar svo við Girona í neðri hlutanum áður en Orri Steinn Óskarsson og félagar í Real Sociedad mæta til leiks gegn Elche í kvöldleiknum.

Leikir dagsins
13:00 Rayo Vallecano - Real Oviedo
15:15 Barcelona - Mallorca
17:30 Sevilla - Girona
20:00 Real Sociedad - Elche
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 27 22 1 4 72 26 +46 67
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Atletico Madrid 27 16 6 5 46 25 +21 54
4 Villarreal 27 17 3 7 50 32 +18 54
5 Betis 27 11 10 6 42 34 +8 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 27 10 7 10 34 40 -6 37
8 Real Sociedad 27 9 8 10 40 41 -1 35
9 Getafe 27 10 5 12 23 29 -6 35
10 Athletic 27 10 5 12 30 37 -7 35
11 Osasuna 27 9 7 11 32 32 0 34
12 Valencia 27 8 8 11 30 41 -11 32
13 Vallecano 27 7 10 10 27 33 -6 31
14 Sevilla 27 8 7 12 35 42 -7 31
15 Girona 27 7 10 10 28 43 -15 31
16 Alaves 27 7 6 14 25 37 -12 27
17 Elche 27 5 11 11 35 41 -6 26
18 Mallorca 27 6 7 14 31 44 -13 25
19 Levante 27 5 7 15 29 45 -16 22
20 Oviedo 27 3 9 15 17 44 -27 18
Athugasemdir
banner
banner