Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 16:46
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Þrjú vítaspyrnumörk í Wolfsburg - 22 mörk í fimm leikjum
Yan Diomande heldur áfram að raða inn fyrir Leipzig
Yan Diomande heldur áfram að raða inn fyrir Leipzig
Mynd: EPA
Deniz Undav skoraði og lagði upp í jafntefli
Deniz Undav skoraði og lagði upp í jafntefli
Mynd: EPA
Alls voru 22 mörk skoruð í leikjunum fimm í þýsku deildinni í dag.

Freiburg og Bayer Leverkusen gerðu stórskemmtilegr 3-3 jafntefli á Europa-Park-vellinum í Freiburg.

Heimamenn komust tvisvar í forystu í fyrri hálfleiknum en glutruðu henni niður.

Martin Terrier kom Leverkusen yfir snemma í þeim síðari áður en Matthias Ginter bjargaði stigi fyrir Freiburg undir lok leiks. Leverkusen er í 6. sæti með 44 stig en Freiburg í 8. sæti með 34 stig.

Hoffenheim vann 4-2 sigur á botnliði Heidenheim. Austurríski miðjumaðurinn Alexander Prass skoraði tvö mörk fyrir Hoffenheim og þá komst Fisnik Asllani og Tim Lemperie einnig á blað. Luca Kerber skoraði bæði mörk botnliðsins.

Hoffenheim er í þriðja sæti deildarinnar með 49 stig en Heidenheim með 14 stig á botninum og stutt í að fall liðsins verði staðfest.

Mainz og Stuttgart skildu jöfn, 2-2. Deniz Undav skoraði og lagði upp fyrir Stuttgart.

Undav er annar markahæsti leikmaður deildarinnar með 15 mörk, en Stuttgart er í 4. sæti með 47 stig á meðan Mainz er í 14. sæti með 24 stig.

Sjálfsmark réði úrslitum í Leipzig er liðið vann 2-1 sigur á Augsburg.

Augsburg fór með eins marks forystu inn í hálfleikinn. Keven Schlotterbeck klikkaði á víti á 23. mínútu fyrir Augsburg áður en Robin Fellhauer sá til þess að koma gestunum í forystu undir lok hálfleiksins.

Í þeim síðari jafnaði Yan Diomande, einn sá allra eftirsóttasti í Evrópu, metin áður en Arthur Chaves stýrði fyrirgjöf Leipzig klaufalega í eigið net undir lok leiks.

Leipzig er í 5. sæti með 47 stig en Augsburg í 9. sæti með 31 stig.

Hamburger SV lagði þá Wolfsburg að velli, 2-1, þar sem öll mörkin kom úr vítaspyrnu.

Danski miðjumaðurinn Christian Eriksen kom Wolfsburg yfir á 22. mínútu úr vítaspyrnu en Luka Vuskovic jafnaði fyrir Hamburger ellefu mínútum síðar á hinum vítapunktinum.

Gestirnir fengu aðra vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik og fór þá Jean-Luc Dompe á punktinn og tryggði Hamburger sigurinn.

Hamburger er í 10. sæti með 29 stig en Wolfsburg í næst neðsta sæti með 20 stig.

Heidenheim 2 - 4 Hoffenheim
0-1 Alexander Prass ('26 )
0-2 Alexander Prass ('45 )
0-3 Fisnik Asllani ('49 )
1-3 Luca Kerber ('63 )
1-4 Tim Lemperle ('78 )
2-4 Luca Kerber ('84 )

Freiburg 3 - 3 Bayer
1-0 Vincenzo Grifo ('34 )
1-1 Christian Kofane ('37 )
2-1 Yuito Suzuki ('43 )
2-2 Alejandro Grimaldo ('45 )
2-3 Martin Terrier ('52 )
3-3 Matthias Ginter ('86 )

RB Leipzig 2 - 1 Augsburg
0-0 Keven Schlotterbeck ('23 , Misnotað víti)
0-1 Robin Fellhauer ('39 )
1-1 Yan Diomande ('76 )
2-1 Arthur Chaves ('90 , sjálfsmark)

Wolfsburg 1 - 2 Hamburger
1-0 Christian Eriksen ('22 , víti)
1-1 Luka Vuskovic ('33 , víti)
1-2 Jean-Luc Dompe ('58 , víti)

Mainz 2 - 2 Stuttgart
1-0 Lee Jae Sung ('39 )
1-1 Ermedin Demirovic ('76 )
1-2 Deniz Undav ('77 )
2-2 Danny da Costa ('90 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 24 15 7 2 51 25 +26 52
3 Hoffenheim 25 15 4 6 53 33 +20 49
4 Stuttgart 25 14 5 6 50 34 +16 47
5 RB Leipzig 25 14 5 6 48 34 +14 47
6 Leverkusen 25 13 5 7 48 32 +16 44
7 Frankfurt 24 9 7 8 48 49 -1 34
8 Freiburg 25 9 7 9 37 42 -5 34
9 Augsburg 25 9 4 12 31 43 -12 31
10 Hamburger 25 7 8 10 28 36 -8 29
11 Union Berlin 24 7 7 10 29 38 -9 28
12 Gladbach 25 6 7 12 28 43 -15 25
13 Köln 24 6 6 12 33 41 -8 24
14 Mainz 25 5 9 11 29 41 -12 24
15 St. Pauli 24 6 5 13 23 40 -17 23
16 Werder 24 5 7 12 25 44 -19 22
17 Wolfsburg 25 5 5 15 34 55 -21 20
18 Heidenheim 25 3 5 17 24 57 -33 14
Athugasemdir
banner
banner