Hollywood-leikarinn Ryan Reynolds, annar eigenda Wrexham, var gríðarlega stoltur af sínu liði sem tapaði gegn Chelsea í framlengingu í enska bikarnum í gær.
Það hefur verið magnaður uppgangur hjá Wrexham síðan Reynolds og kollegi hans Rob McElhenny keyptu félagið árið 2021. Liðið hefur farið upp um þrjár deildir á þremur árum og liðið er í baráttu um sæti í umspilinu í Championship deildinni í dag.
Chelsea kom tvisvar til baka gegn Wrexham í gær og vann að lokum 4-2 eftir framlengdan leik en Wrexham missti mann af velli með rautt spjald undir lok venjulegs leiktíma.
„Það eru þrjú ár síðan við gerðum jafntefli gegn Maidenhead United. Í dag neyddum við Chelsea í framlengingu. Ég er svo ótrúlega stoltur af frammistöðu Wrexham," skrifaði Reynolds á X eftir leikinn.
Three years ago this week, we battled Maidenhead United to a draw. Today we pushed Chelsea to extra time. So incredibly proud of Wrexham’s performance today
— Ryan Reynolds (@VancityReynolds) March 7, 2026
Athugasemdir


