Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 23:04
Ívan Guðjón Baldursson
Þjálfari Wrexham ósáttur: Sorgleg fyrstu kynni af VAR-kerfinu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Phil Parkinson þjálfari Wrexham var ekki ánægður með ákvörðun dómarateymisins að gefa George Dobson beint rautt spjald í uppbótartíma venjulegs leiktíma er hans menn voru slegnir úr leik í enska bikarnum.

Wrexham tók á móti stórveldi Chelsea sem mætti til leiks með varaliðið sitt. Heimamenn reyndust sterkari aðilinn og náðu forystunni í tvígang í venjulegum leiktíma, en í bæði skiptin tókst Chelsea að jafna.

Staðan var 2-2 þegar leikurinn stefndi í framlengingu en þá fékk Dobson að líta rauða spjaldið. Dómari leiksins gaf honum upprunalega gult spjald fyrir grófa tæklingu á Alejandro Garnacho, en eftir athugun í VAR-herberginu var litnum breytt.

„Það er margt við okkar leik sem við getum verið sáttir með eftir þessa frammistöðu. Við mættum ekki í þennan leik bara til að stöðva Chelsea, við spiluðum okkar leik og stóðum okkur vel," sagði Parkinson áður en hann ræddi um VAR.

„Það er bara sorglegt að þetta séu okkar fyrstu kynni af VAR-kerfinu. Þessi dómaraákvörðun verður aðal umtalsefnið frekar heldur en leikurinn sjálfur. Ég hélt að VAR ætti bara að skerast í leikinn þegar dómari hefur gert augljós mistök sem mér finnst ekki vera tilfellið hérna.

„Dobbo fór inn í tæklinguna af krafti en dómarinn var í góðri stöðu til að sjá þetta. Hann fór örlítið í sköflunginn á honum og þeir ákveða að reka hann útaf. Ég tel ekki að VAR hafi átt að skerast í leikinn þarna, gult spjald hefði alveg dugað."


Sjáðu atvikið.
Athugasemdir
banner
banner
banner