Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   fim 09. apríl 2026 15:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Aron Birkir átti gott tímabil í Lengjudeildinni í fyrra. Aron hefur verið aðalmarkvörður Þórs síðan 2017.
Aron Birkir átti gott tímabil í Lengjudeildinni í fyrra. Aron hefur verið aðalmarkvörður Þórs síðan 2017.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Birkir og Yann Affi eru aftast á vellinum í Þórsliðinu.
Aron Birkir og Yann Affi eru aftast á vellinum í Þórsliðinu.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
'Ég og allir Þórsarar erum búnir að bíða mjög lengi'
'Ég og allir Þórsarar erum búnir að bíða mjög lengi'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er hrikalega spenntur, eiginlega get ekki beðið. Ég er að fara spila í efstu deild í fyrsta sinn, ég og allir Þórsarar erum búnir að bíða mjög lengi. Við erum allir ógeðslega spenntir og klárir í þetta," segir Aron Birkir Stefánsson (1999), fyrirliði Þórs. Hann ræddi við Fótbolta.net á kynningarfundi Bestu deildarinnar í gær.

Þór vann Lengjudeildina í fyrra og spilar í ár í efstu deild í fyrsta sinn síðan 2014.

„Það er spenna í Þorpinu, það er búinn að byggjast upp mikill spenningur í vetur og eru að bíða (eftir því að þetta fari af stað)."

Þór tapaði gegn FH í Mjólkurbikarnum síðasta laugardag. „Það var ömurlegt að tapa þessu og tapa í fyrstu umferð okkar í bikarnum, hefðum viljað fara miklu, miklu lengra en þetta. Þetta var ekki nógu gott, en það voru samt einhver jákvæð merki líka. Þetta voru einstaklingsmistök, t.d. hjá mér sem drepa þetta í seinni hálfleik. Ég hef engar áhyggjur þannig séð."

Í aðdraganda móts hefur verið talað um takmarkað reynslu leikmanna í Þórs í efstu deild, reynslulitla varnarlínu og markmanninn, Aron Birki. Líður honum eins og það sé pressa á honum?

„Það er þá bara frá sjálfum mér. Eðlilega (er pressa og umtal), við erum að fara spila í efstu deild í fyrsta skipti. Ég veit að við erum búnir að undirbúa okkur vel, Siggi og Eiður (þjálfarar liðsins) og allir eru búnir að hjálpa okkur mikið og eru búnir að undirbúa okkur eins vel og þeir geta. Ég held að við séum á góðum stað og hef ekki miklar áhyggjur af því."

Þór heimsækir Hlíðarenda á sunnudag og mætir Val klukkan 17:00 í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

„Þetta verður fyrst og fremst gaman, menn verða spenntir, peppaðir og held að það verði engin hræðsla í gangi. Við mætum bara á fullu gasi," segir fyrirliðinn.

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner