Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
   sun 10. maí 2026 19:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Valdimar færði KA ró - „Hefði viljað sjá okkur vera aðeins stærri"
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Þetta var fínasti fyrri hálfleikur, komumst yfir. Ég hefði viljað fá aðeins betri frammistöðu en við tökum þessi þrjú stig," sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir sigur liðsins á ÍBV í Bestu deildinni í dag.

Lestu um leikinn: KA 2 -  0 ÍBV

„Ég hefði viljað að við værum rólegri á boltann og aðeins stærri. Þora að spila aðeins meira, það komu kaflar í seinni hálfleik sem það gerðist en of sjaldan. Erum 1-0 yfir og mér fannst við vera aðeins hræddir við að missa það niður frekar en að elska það að halda áfram að spila og ná inn seinna markinu. Tölfræðin er ágæt en ég er virkilega ánægður með stigin og að halda hreinu annan leikinn í röð. Ég veit að það býr aðeins meira í okkur og það vonandi kemur smám saman."

KA var marki yfir í hálfleik. Það var hins vegar fátt um fína drætti í seinni hálfleik en KA innsiglaði sigurinn í lokin.

„Auðvitað var það léttir. Ég hefði viljað sjá okkur vera aðeins stærri og halda betur í boltann. Þegar Valdimar kom inn á miðjuna fannst mér hann leysa stöðuna vel og kom með smá ró. Það voru margir kaflar sem við hefðum getað nýtt okkur aðeins betur," sagði Haddi.

„Svo verður maður líka að vera heiðarlegur og segja að við erum búnir að tapa þremur heimaleikjum í röð svo það er eðlilegt að það komi smá stress. Eftir tvo sigurleiki vona ég að við tökum skref upp á við. Við vitum að við þurfum að taka nokkur skref. Við vitum að við erum búnir að vera með meiðsli og jafnvel spila meiddum leikmönnum og margir komnir rétt fyrir mót. Ég er virkilega ánægður með að síðustu tveir leikir eru sex stig og við höldum hreinu."
Slapp
banner
banner
banner