Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 11. janúar 2026 16:08
Kári Snorrason
Ítalía: Albert lagði upp í dramatísku jafntefli gegn AC Milan
Albert lagði upp.
Albert lagði upp.
Mynd: EPA
Fiorentina 1 - 1 Milan
1-0 Pietro Comuzzo ('66 )
1-1 Christopher Nkunku ('90)

Albert Guðmundsson og félagar í Fiorentina gerðu grátlegt jafntefli við AC Milan í Serie A í dag.

Albert lagði upp eina mark Fiorentina er hann stýrði hornspyrnu beint á kollinn á Pietro Comuzzo sem stangaði boltann í netið á 66. mínútu.

Útlit var fyrir að Fiorentina myndi sigla sigrinum heim en Frakkinn Christopher Nkunku var ekki á sama máli.

Nkunku, sem kom inn á sem varamaður, jafnaði metin á fyrstu mínútu uppbótartíma og tryggði AC Milan eitt stig.

Fiorentina situr nú í 18. sæti deildarinnar og er útlitið orðið ögn bjartara eftir arfaslaka byrjun á tímabilinu.

AC Milan er í 2. sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Inter sem á þó leik til góða.

Ítalski boltinn er á Livey en hægt er að tryggja sér áskrift með því að smella á tengilinn


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
10 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
11 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner