Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 16:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Breiðabliks í Svíþjóð: Olla Sigga byrjar - Sjö breytingar
Fanney og Thelma Karen í liði Häcken
Kvenaboltinn
Ólöf Sigríður sleit krossband árið 2024 og hefur ekki spilað með Breiðabliki síðan.
Ólöf Sigríður sleit krossband árið 2024 og hefur ekki spilað með Breiðabliki síðan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrsti keppnisleikur undir stjórn Ian Jeffs.
Fyrsti keppnisleikur undir stjórn Ian Jeffs.
Mynd: Breiðablik
Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks mæta sænsku meisturunum í Häcken á Hisingen Arena í Gautaborg klukkan 17:30. Leikurinn er fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum Evrópubikarsins. Seinni leikurinn fer fram á Kópavogsvelli eftir viku.

Leikurinn er fyrsti keppnisleikur Breiðabliks undir stjórn nýs þjálfara, Ian Jeffs, en hann tók við liðinu í desember af Nik Chamberlain.

Hann er búinn að velja lið Breiðabliks fyrir leikinn. Sjö breytingar eru frá síðasta Evrópuleik Breiðabliks. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Andrea Rut Bjarnadóttir, Heiða Ragney Viðarsdóttir, Birta Georgsdóttir og Samantha Smith eru farnar erlendis, Berglind Björg Þorvaldsdóttir er ólétt og Heiðdís Lillýardóttir er hætt.

Inn koma þær Elísa Viðarsdóttir, Elín Helena Karlsdóttir, Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, Ása Halldórsdóttir, Karitas Tómasdóttir, Sunna Rún Sigurðardóttir og Edith Kristjánsdóttir. Á bekknum er Eva Ýr Helgadóttir, varamarkvörður, en hún var síðast hjá Víkingi. Það vekur athygli að Ólöf Sigríður - Olla Sigga - byrjar leikinn en hún er í námi við Harvard háskóla og spilaði ekkert með Breiðabliki fyrir áramót.

Lestu um leikinn: Häcken 5 -  0 Breiðablik

Byrjunarliðið
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
9. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
27. Barbára Sól Gísladóttir
29. Sunna Rún Sigurðardóttir
30. Edith Kristín Kristjánsdóttir

Hjá Häcken eru landsliðskonurnar Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir. Fanney er í markinu hjá Häcken og Thelma byrjar á hægri kantinum.
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Athugasemdir
banner
banner