Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
   þri 10. febrúar 2026 11:00
Kári Snorrason
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
Kvenaboltinn
Ian Jeffs var tilkynntur sem nýr þjálfari Breiðablik í byrjun nóvember.
Ian Jeffs var tilkynntur sem nýr þjálfari Breiðablik í byrjun nóvember.
Mynd: Breiðablik
Breiðablik eru ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar.
Breiðablik eru ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikurinn hefst 17:30 á morgun.
Leikurinn hefst 17:30 á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik mætir sænska liðinu Häcken annað kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópubikarsins. Leikurinn hefst 17:30 og fer fram á Hisingen leikvanginum í Gautaborg.

Breiðablik tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum með fræknum sigri á dönsku meisturunum í Fortuna Hjörring um miðjan nóvember. Þá stýrði Nik Chamberlain liðinu, en í kjölfarið tók Ian Jeffs við stjórnartaumunum eftir að Chamberlain færði sig yfir til Kristianstad.

Snæbjört Pálsdóttir, fréttamaður Fótbolta.net, ræddi við Ian Jeffs á sunnudaginn og fór yfir undirbúning liðsins og komandi verkefni gegn Hacken.

„Þessi leikur leggst ágætlega í okkur. Þetta er spennandi tækifæri að mæta góðu liði og við förum inn í leikinn og njótum þess að vera komin svo langt í þessarri keppni. Við reynum að standa okkur vel og hugsum ekki meira en það. Hópurinn er klár í þetta og við erum vel stefnd.“

Liðið hóf undirbúning fyrir tímabilið í upphafi árs eftir að hafa leikið í Evrópukeppni fram undir miðjan nóvember.

„Við erum búin að gera eins vel og hægt er á þessum árstíma. Það eru fáir leikir en við erum búin að taka nokkra æfingaleiki og mættum Val í Lengjubikarnum. Við erum klárlega eftir á öðrum íslenskum liðum akkúrat núna. Við fórum seint af stað og erum bara búin að vera æfa síðan 5. janúar. Við erum búin að gera eins mikið og hægt er og vonandi erum við vel undirbúin fyrir þetta verkefni, það kemur í ljós.“

Hvernig meturu andstæðinginn?
„Hacken er mjög gott lið með marga góða leikmenn. Síðan eru þær að ganga í gegnum miklar breytingar eins og hjá okkur. Þær eru búnar að missa marga góða leikmenn og þjálfarann líka. Við erum búin að leikgræna þær vel og fórum yfir styrkleika og veikleika þeirra. Mesta einbeitingin er á okkur þar sem við erum að þróa okkar leik. Við erum með nýtt þjálfarateymi og margar breytingar. Það tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur.“

Hvernig er staðan á hópnum?
„Bryndís (Arna Níelsdóttir) er ekki klár, henni vantar aðeins meiri tíma. Af nýju leikmönnunum er Elísa (Viðars) og Katy (Duong) komnar með leikheimild og geta spilað. Við erum búin að bæta leikmönnum inn sem voru á láni í hópinn hjá okkur. Það eru engin meiðsli fyrir utan Bryndísi.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner