Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   þri 10. febrúar 2026 12:30
Kári Snorrason
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Kvenaboltinn
Agla María mætir sínum gömlu félögum annað kvöld.
Agla María mætir sínum gömlu félögum annað kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik eru bæði ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar.
Breiðablik eru bæði ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birta Georgsdóttir fór út til Genoa í upphafi árs.
Birta Georgsdóttir fór út til Genoa í upphafi árs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik mætir sænska liðinu Häcken annað kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópubikarsins. Leikurinn hefst 17:30 og fer fram á Hisingen leikvanginum í Gautaborg.

Snæbjört Pálsdóttir, fréttamaður Fótbolta.net, ræddi við Öglu Maríu Albertsdóttur, fyrirliða Breiðabliks, um komandi viðureign gegn Hacken en hún er jafnframt fyrrum leikmaður sænska liðsins.

Óhefðbundinn Evrópuleikur
„Stemningin er góð, en þetta er samt smá skrítið að hafa æft í mánuð og vera að fara í Evrópuleik. Það er allt annað lið núna en sem við vorum með þegar við slóum út Fortuna Hjörring í Danmörku í nóvember.“

„Við erum flestar búnar að klukka 90 mínútur. Við spiluðum æfingaleik um daginn. Auðvitað er þetta allt öðruvísi undirbúningur en þegar þú ert á miðju tímabili. Þetta verður aðeins öðruvísi leikur hafandi bara æft í einn mánuð.“

Mætir sínum gömlu félögum
Agla var á mála hjá Hacken árið 2022. Hún var spurð hvort að það muni að einhverju leyti gagnast henni.
„Ég held að það muni ekki hjálpa mér neitt. Þetta er allt annað lið, ég kíkti yfir hópinn og það eru afskaplega fá nöfn sem ég kannast við þarna. Þetta er auðvitað atvinnumannalið með eina bestu aðstöðuna í Svíþjóð. Við erum að fara mæta liði sem er í hörkustandi og með hörkufótboltamenn.“

„Helstu tækifærin eru að sækja hratt á móti þeim. Þetta er auðvitað besta liðið í Svíþjóð. Ég var auðvitað á sínum tíma þarna, en þetta er allt annað lið. En við þurfum að eiga algjöran toppleik, ég held að það sé alveg á hreinu.“

Miklar breytingar á Blikaliðinu
Það er ljóst að það eru stór skörð höggvin í meistaraliði Breiðabliks frá síðasta tímabili. Áslaug segir það erfitt að sjá eftir svo marga góða leikmenn yfirgefa félagið.

„Ég viðurkenni það alveg að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum sem eru farnir út. Ég er virkilega ánægð fyrir þeirra hönd en það er klárlega skellur að missa svona marga leikmenn. Það væri ákjósanlegt að missa kannski tvo, þrjá leikmenn en það er mikil breyting á liðinu og mun taka tíma að aðlagast því. Við þurfum að aðlagast fljótt.“

Farnar:
Andrea Rut Bjarnadóttir til Anderlecht
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir til Parma
Birta Georgsdóttir til Genoa
Heiða Ragney Viðarsdóttir til Eskilstuna
Jakobína Hjörvarsdóttir í Stjörnuna
Katherine Devine
Katrín Ásbjörnsdóttir hætt
Kyla Elizabeth Burns
Samantha Smith til Boston Legacy
Athugasemdir
banner