Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
   sun 11. júní 2023 20:10
Anton Freyr Jónsson
Ómar Ingi: Grófum okkur í helvíti djúpa holu
Ómar Ingi, þjálfari HK
Ómar Ingi, þjálfari HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK og Valur mættust í Kórnum í kvöld í leik sem endaði með 5-0 sigri Vals og segir Ómar Ingi Guðmundsson þjálfari HK það svíða mikið.

,Auðvitað gerir það það. Sérstaklega einhverneigin framlagsmunurinn á fyrri og seinni hálfleik það svíður mikið" 


Lestu um leikinn: HK 0 -  5 Valur

Ómar Ingi Guðmundsson var ánægður með fyrri hálfleikinn hjá HK liðinu.

„Mér fannst við verjast vel og gerðum það sem við lögðum upp með fyrir leik. Náðum samt að skapa okkur færi og jafnvel nógu góð til þess að skora og jafnvel betri færi en Valsmenn í fyrri hálfleik þó að þeir hefðu líklega verið aðeins meira með boltann að þá fannst mér við bara spila fyrri hálfleikinn vel þannig ég var ánægður með fyrri hálfleikinn."

„Leikurinn var game over þegar þú færð á þig þrjú mörk á fimmtán mínútum á móti liði eins og Val þá er það bara þannig og það er orðið helvíti erfitt að koma sér uppúr því. Ekki nóg með það að vera 4-0 undir á móti þeim heldur líka eins og ég segi að fá þrjú mörk í andlitið á svona stuttum tíma. Við grófum okkur í helvíti djúpa holu þar."

Framundan er landsleikjahlé og var Ómar Ingi spurður hvernig hann lýtur á stigasöfnunina þegar deildin er rétt tæplega hálfnuð.

„Bara þokkalega. 13.stig í ellefu leikjum, bara fínt og örugglega betra en margir bjuggust við en kannski minna en við hefðum vilja vera þegar við horfum á þessa ellefu leiki til baka og við þurfum alveg klárlega að gera jafn vel og líklega betur í næstu ellefu leikjum ef við ætlum að ná markmiðunum okkar í deildinni."


Athugasemdir
banner