,,Þetta er bara eins og hver annar leikur í undankeppninni. Við þurfum bara að halda áfram að gera það gott," sagði Ari Freyr Skúlason við Fótbolta.net fyrir leikinn gegn Kýpur í undankeppni HM í kvöld klukkan 18:45.
Ísland er í öðru sæti riðilsins fyrir leikinn og mikill áhugi er fyrir leiknum.
Ísland er í öðru sæti riðilsins fyrir leikinn og mikill áhugi er fyrir leiknum.
,,Það var uppselt um leið og miðarnir komu í sölu og ég get ekki beðið eftir því að koma aftur hingað og spila fyrir framan fullt hús."
Ari Freyr gekk í sumar til liðs við danska félagið OB frá GIf Sundsvall. Eftir að hafa leikið á miðjunni í Svíþjóð var áætlunin að leika í vinstri bakverði hjá OB líkt og með landsliðinu. Ari hefur hins vegar spilað á miðjunni í síðustu leikjum og staðið sig vel.
,,Ég er búinn að spila sjö af tíu á miðjunni en ég er áætlaður sem bakvörður. Ég spila þar sem ég er settur," sagði Ari.
,,Þeir vita hvað ég vil og þeir vilja líka að ég sé vinstri bakvöðrur en ég hef staðið mig vel á miðjunni og er á þokkalegu róli. Ég æfi á hverjum degi sem bakvörður svo ég vona að ég sé alveg með þetta," sagði Ari léttur í bragði að lokum.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















