Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   mán 12. janúar 2026 19:53
Brynjar Ingi Erluson
Bróðir Bergvall eftirsóttur
Mynd: Djurgården
Theo Bergvall, eldri bróðir Lucas Bergvall hjá Tottenham, er á óskalista hjá tveimur félögum í Evrópu en þetta herma heimildir Aftonbladet og VI.

Theo er 21 árs gamall hægri bakvörður sem ólst upp hjá Brommapojkarna en leikur nú með Djurgården.

Aftonbladet segir tvö félög berjast um undirskrift hans en það eru Go Ahead Eagles í Hollandi og Lausanne Sport í Sviss.

Djurgården er sagt opið fyrir því að selja Bergvall sem rennur út á samningi í lok árs.

Eagles vilja fá hann til að berjast um hægri bakvarðarstöðuna við fyrirliðann Mats Deijl og er Bergvall þá ætlað að taka við stöðunni verði Deijl seldur í framtíðinni.

Theo á nokkra leiki að baki með yngri landsliðum Svíþjóðar og er nú fastamaður í hópnum hjá U21 árs landsliðinu.

Lucas, yngri bróðir Theo, gekk í raðir Tottenham frá Djurgården árið 2024.
Athugasemdir
banner
banner