Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
banner
   mán 12. janúar 2026 20:15
Brynjar Ingi Erluson
Gallagher á leið til Tottenham - „Here we go!“
Conor Gallagher er á leið aftur til Englands
Conor Gallagher er á leið aftur til Englands
Mynd: EPA
Tottenham Hotspur hefur náð samkomulagi við Atlético Madríd um kaup á enska miðjumanninum Conor Gallagher. Fabrizio Romano hefur sett „Here we go!“ á skiptin.

Aston Villa var í bílstjórasætinu um Gallagher í byrjun mánaðarins og var útlit fyrir að hann myndi vera ný viðbót í hópinn hjá Unai Emery.

Gallagher vildi hins vegar ekki gefa Villa græna ljósið og kom Tottenham inn á elleftu stundu. Leikmaðurinn hefur samþykkt að ganga í raðir Tottenham, en tilboðið nemur um 35 milljónum punda og mun Atlético samþykkja það.

Englendingurinn er því að snúa aftur til heimalandsins tveimur árum eftir að hafa yfirgefið Chelsea.

Gallagher á 22 A-landsleiki með Englendingum og eitt mark.


Athugasemdir
banner
banner
banner