Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
   sun 12. apríl 2026 20:20
Sölvi Haraldsson
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður mjög vel. Frábær sigur. Karakter að lenda undir og koma til baka. Gjörsamlega tökum yfir þennan leik í seinni hálfleik, mér fannst við fyrstu 25-30 mínúturnar í seinni hálfleiknum bara vera miklu betri aðilinn. Svo missum við aðeins tökin á þessu. Veit ekki alveg afhverju, það kom kannski smá skjálfti í okkur. Það var smá skjálfti í okkur í fyrri hálfleik en svo tökum við yfir fyrstu 25-30 mínúturnar í seinni hálfleik sem skóp þennan sigur.“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir hádramatískan 2-1 sigur á Þór í kvöld.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  2 Þór

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, sagði eftir leik að Valur hafi stýrt leiknum frá A til Ö, Sigurður var spurður eftir leik hvort hann sé sammála þeim ummælum.

„Hann má alveg halda það, það er bara fínt ef hann heldur að Valur hafi stýrt leiknum frá A til Ö, það er bara geggjað.“

Aron, markmaður Þórs, gerði sig sekan um mistök í marki Valsmanna í dag. Markvarðastaða Þórs hefur verið mikið milli tannana á fólki fyrir mót en Sigurður segist ekki þurfa annan markmann.

„Fá inn annan markmann? Svo sannarlega ekki. Ég held að hann hafi verið okkar besti leikmaður í allan vetur. Hann var bara stórkostlegur. Spyrnurnar hans eru geggjaðar, hann er geggjaður leiðtogi og fyrirmynd. Hann kemur hérna á stóra sviðið í fyrsta leik og gerir ein mistök, hann er geggjaður gæi og ég þyrfti að vera eitthvað ruglaður til að fara og skipta um markmann.“

„Mér líst ótrúlega vel á þetta. Ég hef alveg svakalega trú á þessum hóp og svakalega trú á því sem við erum að gera og stöndum fyrir. Ég er bara gífurlega spenntur fyrir framhaldinu. Það er bara fínt ef fólk er að efast um okkur.“ sagði Sigurður Heiðar, þjálfari Þórs, eftir leik.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner