Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   þri 12. maí 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Grindavík/Njarðvík fær reynslumikinn markmannsþjálfara
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Magnússon hefur verið ráðinn sem markmannsþjálfari meistaraflokks Grindavíkur/Njarðvíkur á samningi sem gildir út tímabilið.

Þorsteinn býr yfir mikilli reynslu úr þjálfun þar sem hann hefur meðal annars starfað hjá Kristianstad, Breiðabliki og Stjörnunni á flottum ferli, auk þess að hafa komið að markmannsþjálfun yngri landsliða Íslands frá U17 upp í U21 í bæði karla- og kvennaflokki.

Hann er með bestu mögulegu þjálfararéttindin þegar kemur að markmannsþjálfun eða UEFA A og markmannsþjálfararéttindi KSÍ auk þess að vera með almenna UEFA A þjálfaragráðu, þá næstæðstu á undan UEFA Pro gráðunni.

Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur eru með sex stig eftir fjórar fyrstu umferðir deildartímabilsins í Bestu deildinni eftir glæsilegan sigur á útivelli gegn Þrótti R. í gærkvöldi.


Slapp
banner
banner
banner