Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
banner
   þri 12. maí 2026 00:33
Snæbjört Pálsdóttir
Gylfi sáttur með sigurinn: „Þessi seinni hálfleikur var mjög langur"
Kvenaboltinn
Gylfi segir Grindavík/Njarðvík hafa lagt grunninn að sigrinum í sterkum fyrri hálfleik.
Gylfi segir Grindavík/Njarðvík hafa lagt grunninn að sigrinum í sterkum fyrri hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var afar sáttur eftir 1-2 útisigur nýliðanna gegn Þrótti í Bestu deild kvenna í Laugardalnum í kvöld. Gestirnir skoruðu tvívegis í fyrri hálfleik og lögðu grunninn að mikilvægum sigri gegn sterku liði Þróttar.

„Bara mjög góð. Fannst við bara drulluflottar í fyrri hálfleiknum, skorum bæði mörkin okkar þá og komum okkur í góða stöðu fyrir seinni hálfleikinn,“ sagði Gylfi eftir leik.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  2 Grindavík/Njarðvík

„Bara mjög jákvæður fyrri hálfleikur og er bara ekki með svörin af hverju við náðum ekki að vera betri í seinni hálfleik. Hlakka til að horfa á þennan leik aftur og finna út úr því.“

Þróttarar sóttu stíft að marki Grindavíkur/Njarðvíkur undir lok leiks og játaði Gylfi að spennan hefði færst yfir á bekkinn þegar leið á síðari hálfleikinn.

„Já það gerði það nú, það er mjög misjafnt hvort það fari eitthvað um mig á bekknum eða ekki en í dag gerði það.“

„Við ætluðum okkur ekki að láta þær skora í dag. En þær náðu því og þær náðu því helvíti snemma í seinni hálfleiknum og það var óþægilegt. Þessi seinni hálfleikur var mjög langur og lengi að líða.“

Þrátt fyrir mikla pressu heimaliðsins í seinni hálfleik var Gylfi ánægður með hvernig lið hans varði teiginn.

„Þær eru með skýran sóknarleik sem gengur bara að mínu viti vel hjá þeim. Þær skapa mjög mikla hættu inn í vítateignum hjá okkur. Við vörðumst því mjög vel í dag fannst mér.“

„Það sýndi sig í seinni hálfleik að þær voru að dæla boltum inn í boxið og ég veit ekki hvað við náðum að skalla mikið af því burt.“

„Ég er bara ógeðslega stoltur af liðinu mínu að koma hérna á erfiðan útivöll á móti virkilega öflugu liði og fara héðan og finnast við hafa átt skilið það sem við fengum út úr leiknum.“

Næsta verkefni Grindavíkur/Njarðvíkur er bikarleikur gegn Val á Hlíðarenda, þar sem liðin mættust einnig í fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Þá höfðu Valskonur betur 2-1

„Það eru pottþétt einhverjar í liðinu sem eru með blóðbragð í munninum eftir þann leik, þar sem við vorum bara töluvert sterkari aðilinn í þeim leik.“

„Það hefur verið stígandi hjá þeim, þannig þetta verður allt annað Valslið sem við mætum í bikarnum og vonandi erum við orðnar aðeins betri sjálfar og getum mætt með betra lið en var að spila síðasta leik.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner
banner