Ísland mætir Japan í æfingaleik í Tókýó þann 31. maí og 9. júní mætir liðið svo Argentínu í Bandaríkjunum.
Leikurinn í Japan er utan landsleikjaglugga en alþjóðlegur landsleikjagluggi hefst ekki fyrr en 1. júní og er út 10. júní.
Opinberað verður á morgun, miðvikudag, hvaða leikmenn taka þátt í leikjunum fyrir Íslands hönd og sama dag situr Arnar Gunnlaugsson þjálfari íslenska liðsins fyrir svörum á fréttamannafundi.

Ísland mun mæta Argentínu í vináttulandsleik á Jordan-Hare leikvangnum í Auburn, Alabama í Bandaríkjunum þriðjudaginn 9. júní.
Þetta verður heldur betur áhugavert verkefni. Leikurinn verður síðasti leikur ríkjandi heimsmeistara Argentínu í undirbúningi sínum fyrir HM 2026 en Argentína er þar í riðli með Alsír, Jórdaníu og Austurríki.