Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Xabi Alonso opinn fyrir Chelsea
Mynd: EPA
Enska stórveldið Chelsea er í leit að nýjum stjóra eftir mikil vandræði með stöðuna á tímabilinu.

Enzo Maresca og Liam Rosenior hafa báðir verið reknir úr þjálfarastarfinu og vilja eigendur Chelsea ráða inn nýjan stjóra á næstu vikum.

Spánverjarnir Andoni Iraola, Marco Silva og Xabi Alonso eru meðal þeirra sem hafa verið nefndir til sögunnar sem mögulegir arftakar en af þeim eru Iraola og Alonso taldir vera efstir á óskalistanum.

Cesc Fábregas, Filipe Luís og Oliver Glasner hafa einnig verið orðaðir við starfið.

David Ornstein hjá The Athletic greindi frá því í gær að Xabi Alonso sé opinn fyrir því að taka við starfinu. Hann mun því líklega hefja viðræður við félagið á næstu dögum.

Alonso, sem gerði magnaða hluti við stjórnvölinn hjá Bayer Leverkusen, hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Real Madrid í janúar.

Alonso er fyrrum leikmaður Liverpool og hefur verið orðaður við þjálfarastarfið þar á bæ, en allar líkur eru á því að Arne Slot fái að halda áfram við stjórnvölinn þrátt fyrir mikið vonbrigðatímabil.
Slapp
banner
banner