Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
banner
   fim 05. mars 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rekinn í þriðja skiptið á tíu mánuðum
Ruben Selles.
Ruben Selles.
Mynd: EPA
Lífið leikur ekki við spænska stjórann Ruben Selles þessa dagana.

Hann var í byrjun vikunnar rekinn frá spænska félaginu Real Zaragoza eftir að hafa stýrt liðinu í aðeins 20 leikjum.

Hann tók við Zaragoza í október en undir hans stjórn tókst liðinu aðeins að vinna fjóra leiki í spænsku B-deildinni.

Það gengur ekki vel hjá Selles en í september síðastliðnum var hann rekinn frá Sheffield United á Englandi eftir að hafa verið þar aðeins í fimm mánuði.

Selles var þar áður rekinn frá Hull en hann hefur einnig stýrt Reading og Southampton á sínum stjóraferli.
Athugasemdir
banner