Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mið 04. mars 2026 17:30
Elvar Geir Magnússon
Stefnt á að Mateta snúi aftur í næstu viku
Jean-Philippe Mateta.
Jean-Philippe Mateta.
Mynd: EPA
Oliver Glasner, stjóri Palace.
Oliver Glasner, stjóri Palace.
Mynd: EPA
Crystal Palace mætir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Oliver Glasner stjóri liðsins fór yfir stöðuna á leikmannahópnum á fréttamannafundi.

Hann greindi frá því að miðvörðurinn og miðjumaðurinn Jefferson Lerma, sem hefur ekki spilað síðan í tapi gegn Burnley í febrúar, sé í hópnum og gæti komið inn af bekknum.

„Hann hefur æft með okkur. Hann er ekki klár í að byrja en ef við þurfum á honum að halda í 15-20 mínútur í lokin þá er hann til taks," segir Glasner.

Mikill missir
Maxence Lacroix verður ekki með í leiknum á morgun en hann tekur út leikbann eftir rauða spjaldið sem hann fékk í tapinu gegn Manchester United um síðustu helgi.

„Það er mikill missir og það þurfa aðrir að stíga upp. Svona var ákvörðun dómarans og við þurfum að sætta okkur við hana," segir Glasner.

Stefnt á að Mateta taki mínútur í Sambandsdeildinni
Sóknarmaðurinn Jean-Philippe Mateta hefur ekki spilað síðan í janúar vegna hnémeiðsla sem komu í veg fyrir skipti hans til AC Milan í janúarglugganum.

Glasner segir að stefnt sé á það að Mateta taki þátt í æfingu á mánudaginn og geti jafnvel spilað einhverjar mínútur gegn Larnaca í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar á fimmtudaginn í næstu viku.

„Hann hefur verið frá í margar vikur en hnéð lítur betur út núna. Við þurfum að fara varlega með hann en markmiðið er að hann geti tekið þátt í Larnaca leiknum," segir Glasner en Mateta er í baráttu um að vera í franska landsliðinu á HM í sumar.

Glasner sagði einnig frá því á fundinum að Eddie Nketiah yrði ekki klár fyrr en í apríl.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner
banner