Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gagnrýnir Maguire harðlega - „Lagði mannorð sitt í rúst"
Harry Maguire.
Harry Maguire.
Mynd: EPA
Jeremy Cross, sem er yfir fótboltaskrifum hjá Mirror, skrifar í dag pistil þar sem hann gagnrýnir Harry Maguire, varnarmann Manchester United, harðlega.

Maguire hefur verið stórkostlegur í vörn United frá því að Michael Carrick tók við liðinu en það var eitt atvik í sigrinum gegn Crystal Palace um síðustu helgi sem fór verulega í taugarnar á Cross.

Maguire hélt þá um höfuð sitt þegar Jörgen Strand Larsen, sóknarmaður Palace, setti fót sinn upp í loft. Strand Larsen snerti Maguire ekki neitt, var frekar langt frá því, en Maguire seldi dómaranum það að brot hefði átt sér stað.

„Harry Maguire átti að vera eitt síðasta vígi heiðarleika og kurteisi þegar kemur að fótboltamönnum sem verðskulda virðingu okkar. En með einni fáránlegri stund lagði hann mannorð sitt í rúst," skrifar Cross.

Hann heldur svo áfram og segir það fáránlegt að Maguire fái ekki refsingu fyrir að blekkja dómarann.

„Maguire hefur alltaf virkað kurteis, hjálpsamur og einlægur. Sem gerir þetta atvik enn erfiðara að skilja. Fótboltinn hefur nóg af lygurum og svindlurum, án þess að einhver eins og Maguire bæti við tölurnar."

„En hvernig getur það verið réttmætt að einhver eins og Maguire geti gert eitthvað svona og sloppið við refsingu? Hvernig getum við lifað í heimi þar sem fótboltamaður getur verið sekur fyrir þann hræðilega glæp að fara úr treyjunni en sloppið við áminningu fyrir augljóst svindl?" skrifar Cross.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af atvikinu sem um ræðir.


Athugasemdir
banner
banner