Logi Tómasson og félagar í Samsunspor eru komnir áfram í 8-liða úrslit tyrkneska bikarsins eftir sigur í lokaumferð riðlakeppninnar í kvöld.
Liðið heimsótti Antalyaspor og vann 2-0 en Logi kom inn á sem varamaður á 85 mínútu og liðið innsiglaði sigurinn fjórum mínútum síðar.
Liðið heimsótti Antalyaspor og vann 2-0 en Logi kom inn á sem varamaður á 85 mínútu og liðið innsiglaði sigurinn fjórum mínútum síðar.
Samsunspor endaði á toppnum í B-riðli en liðið var með fullt hús stiga í fjórum umferðum.
Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem varamaður þegar Cavese tapaði 2-0 gegn Crootone í ítölsku C-deildinni. Cavese er í 15. sæti C-riðils með 31 stig eftir 30 umferðir.
Athugasemdir




