Igor Tudor, stjóri Tottenham, hefur ákveðið að taka markvörðinn Guglielmo Vicario út úr byrjunarliðinu en hann hefur átt brösugt tímabil og hlotið talsverða gagnrýni.
Varamarkvörðurinn Antonin Kinsky, sem er 22 ára Tékki, verður í markinu gegn Crystal Palace í kvöld en The Sun greinir frá þessari breytingu á byrjunarliðinu hjá Tudor.
Kinsky hefur ekki spilað mínútu síðan í október.

Vicario, sem er 29 ára, hefur gert nokkur dýrkeypt mistök á tímabilinu og fengið á sig tvö mörk eða fleiri í síðustu átta deildarleikjum.
Leikur Tottenham og Crystal Palace hefst klukkan 20:00 en Tottenham er stigi frá fallsæti eftir úrslitin í gær.
Athugasemdir