Spænski miðjumaðurinn Xabi Cardenas hefur náð samkomulagi við Völsung um að taka slaginn með liðinu í sumar. Það verður hans þriðja tímabil á Húsavík.
Hann er fæddur árið 1998 og uppalinn hjá Real Sociedad. Hann lagði upp þrjú mörk í 17 leikjum í Lengjudeildinni í fyrra samkvæmt Transfermarkt.
Hann er fæddur árið 1998 og uppalinn hjá Real Sociedad. Hann lagði upp þrjú mörk í 17 leikjum í Lengjudeildinni í fyrra samkvæmt Transfermarkt.
„Þær gleðifréttir hafa borist að Xabi okkar hefur framlengt samning sinn við félagið. Xabi er 27 ára miðmjumaður sem kom fyrst til okkar fyrir tveimur árum og tók þátt í ævintýrinu að koma okkur upp úr 2.deildinni. Einnig lék hann 17 leiki í Lengjudeildinni í fyrra þegar við lentum í 7. sæti. Það eru því frábærar fréttir að Xabi framlengi veru sína á Húsavík og ætli að taka þátt í Lengjudeildinni með okkur í sumar. Xabi er þegar mættur á Húsavík og bjóðum við hann velkominn aftur. Vaaaamos!!!!!" segir í tilkynningu Völsungs.
Komnir
Jeffrey Baltus frá Nepal
Juan Guardia frá Þór
Davíð Leó Lund frá Tindastóli (var á láni)
Ýmir Hjálmsson frá Njarðvík
Farnir
Jakob Héðinn Róbertsson í KA
Bjarki Baldvinsson hættur
Elvar Baldvinsson í Þór
Ívar Arnbro Þórhallsson í KA (var á láni)
Ismael Salmi Yagoub til Víkings Ó.f
Sergio Parla Garcia til Spánar
Pétur Orri Arnarson í Þór (var á láni)
Ólafur Jóhann Steingrímsson í Magna
Rafnar Máni Gunnarsson hættur
Samningslausir
Elmar Örn Guðmundsson
Elfar Árni Aðalsteinsson
Steinþór Freyr Þorsteinsson
Gunnar Kjartan Torfason
Inigo Albizuri Arruti
Gestur Aron Sörensson
Tómas Bjarni Baldursson
Aron Bjarki Kristjánsson
Tryggvi Grani Jóhannsson
Einar Ísfjörð Sigurpálsson
Aron Bjarki Jósepsson
Athugasemdir



