Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fim 05. mars 2026 10:23
Elvar Geir Magnússon
„Segja liðið leiðinlegt en það er að komast yfir línuna“
Mikið er rætt og ritað um Arsenal.
Mikið er rætt og ritað um Arsenal.
Mynd: EPA
Micah Richards.
Micah Richards.
Mynd: EPA
Brighton var yfir í nánast öllum tölfræðiþáttum gegn Arsenal í gær, allt frá því að vera með boltann yfir í vænt mörk. En Arsenal vann tölfræðiþáttinn sem skiptir langmestu máli; skoruð mörk.

Mikið hefur verið rætt og ritað um leikstíl Arsenal og sparkspekingurinn Micah Richards tjáði sig í þættinum Match of the Day á BBC eftir 1-0 sigurinn gegn Brighton.

Man City spilar betri fótbolta
„Fólk hefur talað um Arsenal og kallað liðið leiðinlegt, að það geti ekki unnið deildina svona, en þeir eru að komast yfir línuna og það er munurinn í dag," segir Richards.

„Ég myndi segja að Man City spili betri fótbolta og taki fleiri áhættur en varnarlega er Arsenal betra. Liðið hefur haldið fjórtán sinnum hreinu á þessu tímabili, í 30 leikjum. Það er magnað."

Elítuhugarfar
Danny Murphy var einnig í þættinum og sagði að sóknarlega hafi Arsenal verið vonbrigði og það hafi skort sköpunarmátt.

„En það er þetta hugarfar hjá Arsenal um allan völl, þeir eru tilbúnir að verjast og eru líkamlega öflugir. Þeir eru sterkir, þeir eru góðir í loftinu, snöggir, öflugir íþróttamenn. Það er elítuhugarfar og það er eitthvað sem Mikel Arteta hefur skapað. Hann sættir sig ekki við annað," segir Murphy.

Arsenal er með sjö stiga forystu eftir leiki gærkvöldsins þar sem Manchester City missteig sig og gerði 2-2 jafntefli gegn Nottingham Forest.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner