Það er pressa á Arne Slot, stjóra Liverpool, þessa stundina en liðið er í harðri baráttu um að komast í Meistaradeildina.
Eftir 2-1 tap gegn Úlfunum í vikunni eru raddirnar um framtíð Slot hjá Liverpool farnar að verða æ háværari.
Eftir 2-1 tap gegn Úlfunum í vikunni eru raddirnar um framtíð Slot hjá Liverpool farnar að verða æ háværari.
Slot stýrði Liverpool til Englandsmeistaratitils á síðustu tímabil en það mun ekki bjarga starfinu hans ef markmiðin nást ekki núna.
„Hann er í miklum vandræðum og þarf að ná í úrslit," sagði Jamie O'Hara, fyrrum miðjumaður Tottenham, á Sky Sports.
„Ef hann kemur liðinu ekki í Meistaradeildina þá verður hann 100% rekinn. Þú getur ekki bara haldið honum af því hann vann ensku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð."
Athugasemdir




