Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
   fim 05. mars 2026 17:00
Elvar Geir Magnússon
Fall yrði meira en 250 milljóna punda högg fyrir Tottenham
Tottenham er einu stigi frá fallsæti.
Tottenham er einu stigi frá fallsæti.
Mynd: EPA
Samkvæmt útreikningi fjármálasérfræðings BBC gæti tekjuskerðing Tottenham numið allt að 261 milljón punda (43,6 milljarða íslenskra króna) ef liðið fellur úr ensku úrvalsdeildinni.

Innkoma Tottenham nam 690 milljónum punda á síðasta ári.

Ein helsta lækkunin yrði í miðasölutekjum en þær voru 130 milljónir punda eða sú fimmta hæsta í Evrópu.

Síðan félagið tók nýja leikvanginn í notkun hefur það lagt áherslu á að selja miða á dýrari svæði með veitingum inniföldum.

Miðaverðið myndi lækka talsvert ef liðið er ekki að spila í úrvalsdeildinni heldur gæti verið að mæta liði eins og Lincoln City sem er í baráttu um að komast upp í Championship. Sjónvarpstekjur eru annað sem myndi lækka gríðarlega ef Tottenham fellur.

Tottenham mætir Crystal Palace í kvöld en liðið er einu stigi fyrir ofan fallsæti eftir úrslitin.
Athugasemdir
banner
banner