Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
   fim 05. mars 2026 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Tilgangslaust að líta til baka og fara að grenja"
Mynd: EPA
Bernardo Silva, fyrirliði Man City, segir að það sé tilgangslaust að fara grenja eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Nottingham Forest í gær.

Man City er í titilbaráttu við Arsenal sem er með sjö stiga forystu á toppnum eftir sigur á Brighton í gær en City á leik til góða.

„Það er okkur að kenna að við unnum ekki. Það er okkur að kenna að við fengum á okkur mark á lokamínútunni gegn Chelsea á heimavelli og að við unnum ekki gegn Brighton, að við vorum að vinna 2-0 gegn Tottenham og leyfðum þeim að komast inn í leikinn," sagði Silva.

„Við erum enn í fjórum keppnum og það er tilgangslaust að líta til baka og fara að grenja. Við þurfum að horfa í næsta leik og vonandi munum við berjast um alla titlana næstu þrjá mánuðina."
Athugasemdir
banner
banner