Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
banner
   fim 05. mars 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Haukur Brink (Stjarnan)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarki Hrafn er mjög efnilegur leikmaður.
Bjarki Hrafn er mjög efnilegur leikmaður.
Mynd: Aðsend
Óþolandi þegar hann er pirraður á æfingum.
Óþolandi þegar hann er pirraður á æfingum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stutt í glensið.
Stutt í glensið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mjög gott hár.
Mjög gott hár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aðeins ýtt í Stubb.
Aðeins ýtt í Stubb.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skíthræddur við Árna.
Skíthræddur við Árna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukur Brink er tvítugur sóknarmaður sem uppalinn hjá Stjörnunni. Hann hefur verið heitur á undirbúningstímabilinu, skorað fjögur mörk í fjórum Lengjubikarsleikjum og skoraði í leikjum Stjörnunnar í æfingaferðinni.

Hann kom við sögu í ellefu leikjum í fyrra án þess að skora eftir að hafa skorað fimm mörk tímabilið 2024. Í dag sýnir Haukur á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Haukur Örn Brink

Gælunafn: Brink

Aldur: 20 ára

Hjúskaparstaða: Single

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var árið 2023 með KFG og ég man ekki mikið eftir þeim leik.

Uppáhalds drykkur: vitamin well ananas

Uppáhalds matsölustaður: Just Wingin it eða XO

Uppáhalds tölvuleikur: Rocket league

Áttu hlutabréf eða rafmynt:

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Friends og seinfeld, get horft endalaust á þá

Uppáhalds tónlistarmaður: Alltaf Justin Bieber og bítlarnir uppáhalds hljómsveit

Uppáhalds hlaðvarp: hlusta ekki mikið á hlaðvörp en fm95blö er uppáhalds

Uppáhalds samfélagsmiðill: TikTok og Instagram

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fotbolti.net og Guitarparty.com

Fyndnasti Íslendingurinn: Það er annaðhvort Guðmundur Thor Ingason eða Róbert frosti þegar ADHD lyfin hætta að virka.

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Bjarnastaðabeljan hættir ekki að baula - Helgi Fróði Ingason

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Breiðablik

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Gylfi Þór

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Jökull el og svo fá Raggi Trausta og Þórir Karlsson líka stórt shout out.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Pirraður Daníel Freyr á æfingum

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Ronaldo , Neymar og Darwin Nunez

Sætasti sigurinn: Þegar við unnum einvígið á móti Linfield og ég lagði upp sigurmark á Hilmar Árna á loka mínútunum

Mestu vonbrigðin: tapa úrslitaleiknum í 3. fl á móti Breiðabliki

Uppáhalds lið í enska: Liverpool

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Baldur Ívarsson úr Létti

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Bjarki Gaddajóson

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Dagur Orri Gaddajóson

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Held að Örvar Eggerts taki þetta ( fallegasta hár á Íslandi)

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Darwin Nunez

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Ekki gult spjald fyrir að fara úr treyju

Uppáhalds staður á Íslandi: Eskifjörður eða Ásgarðslaug

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: þegar ég ýtti aðeins í Stubb 6 sinnum í einum leik og allt varð vitlaust á Akureyri

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei en ég er með nokkuð fasta rútínu á leikdegi

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: ekki mikið en fylgist alltaf með þegar landsliðið er að keppa í einhverju

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: hef alltaf verið ágætis námsmaður

Vandræðalegasta augnablik: Vinir mínir eiga eflaust fullt af vandræðalegum sögum af mér en ég man ekki eftir neinu sérstöku

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Ronaldo, Messi, Darwin. Bara læra af þeim.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Andri Rúnar útaf hann er bara einn fyndnasti maður sem ég þekki

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Sigurður Gunnar í Love island eða Benedikt Waren í Survivor. Held þeir myndu fíla sig vel þar

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Kannski ekki sturluð staðreynd en ég er mjög músíkalskur, spila á píanó og gítar og það er lag á leiðinni!

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Árni Snær því þegar ég var ungur bolta strákur var ég skíthræddur við hann en síðan kemur í ljós að þetta er algjör kærleiksbjörn

Hverju laugstu síðast: Ég er með versta poker face sögunnar þannig ég reyni að sleppa því, en Örvar Eggerts er ekki fallegasta fótboltakonan

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Boltalaus hlaup

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spyrja pabba minn einhverrar vel valinnar spurningar

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: allir mæta á völlinn og sjá okkur vinna deildina!
Athugasemdir
banner