Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
banner
   mið 04. mars 2026 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Roy Keane: Ég styð ekki Man Utd
Roy Keane.
Roy Keane.
Mynd: EPA
Roy Keane segist ekki vera stuðningsmaður Manchester United þrátt fyrir að hafa verið fyrirliði þar lengi.

Keane lék með Man Utd frá 1993 til 2005 og vann allt sem hægt er að vinna með félaginu. Það er óumflýjanlegt að tengja hann við félagið en hann segist ekki vera stuðningsmaður þess.

„Ég styð ekki Man Utd," sagði Keane við The Overlap.

„Þú hefur meiri innsýn í það hvernig hlutirnir virka hjá félaginu og hverjar væntingarnar eru, en ég er ekki stuðningsmaður. Úrslitin skemma ekki helgina fyrir mér."

Keane spilaði einnig fyrir Nottingham Forest og Celtic á sínum ferli og segist ekki styðja þau félög neitt frekar.
Athugasemdir
banner
banner