Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason fór meiddur af velli þegar Panathinaikos vann 4-1 sigur gegn OFI Crete í grísku úrvalsdeildinni í kvöld.
Samkvæmt grískum fjölmiðlum eru meiðslin ekki alvarleg.
Samkvæmt grískum fjölmiðlum eru meiðslin ekki alvarleg.
Panathinaikos er í fjórða sæti grísku deildarinnar en OFI Crete er í sjötta sætinu.
Íslendingaliðin úr leik
Í Hollandi og Póllandi voru Íslendingalið að spila í bikarkeppnunum og féllu þau bæði úr leik.
Nökkvi Þeyr Þórisson var í byrjunarliði Telstar sem tapaði gegn AZ Alkmaar í hollenska bikarnum og Gísli Gottskálk Þórðarson kom inn af bekknum hjá Lech Poznan í tapleik gegn Gornik Zabrze í pólska bikarnum. Svekkjandi fyrir Lech sem var manni fleiri í stundarfjórðung og klúðraði vítaspyrnu.
Í Skotlandi var þá Kjartan Már Kjartansson ónotaður varamaður í tapi Aberdeen gegn Celtic, 1-2. Celtic er núna fimm stigum á eftir Tómasi Bent Magnússyni og félögum í Hearts á toppi skosku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir


