Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 21:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ætlaði að sækja víti en fékk að líta rauða spjaldið
Jacob Ramsey.
Jacob Ramsey.
Mynd: EPA
Newcastle er einum færri gegn Manchester United eftir að Jacob Ramsey fékk að líta sitt annað gula spjald.

Ramsey ætlaði sér að sækja vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks en fékk í staðinn rauða spjaldið.

Ramsey hafði fengið gult spjald um miðbik fyrri hálfleiks og var þetta hans annað gula spjald.

Senne Lammens, markvörður Man Utd, kom ekki við hann og dómarinn var alveg með það á hreinu.

Newcastle tók forystuna í leiknum þrátt fyrir rauða spjaldið en Man Utd náði að jafna metin rétt áður en liðin gengu til búningsklefa.

Hægt er að sjá atvikið með því að smella hérna.
Athugasemdir
banner