Manchester United er að skoða ýmsa mögulega á leikmannamarkaðnum fyrir sumarið þegar Casemiro yfirgefur félagið.
Casemiro hefur átt mjög flott tímabil og það verður flókið verkefni að finna mann í hans stað.
Casemiro hefur átt mjög flott tímabil og það verður flókið verkefni að finna mann í hans stað.
Talið er að Man Utd vilji bæta við sig tveimur miðjumönnum í sumar en Elliot Anderson hjá Nottingham Forest, Carlos Baleba hjá Brighton, Sandro Tonali hjá Newcastle, og Adam Wharton hjá Crystal Palace eru á óskalistanum ásamt Angelo Stiller, sem spilar með Stuttgart í Þýskalandi.
Daily Mail fjallar þá um það að Tyler Adams hjá Bournemouth sé einnig leikmaður sem kemur til greina. Hann er ódýrari kostur en hinir, mun aðeins kosta um 40 milljónir punda.
Það mun mikið velta á því hvort Man Utd komist í Meistaradeildina eða ekki. Ef liðið kemst í Meistaradeildina þá verður meira fjármagn til að kaupa leikmenn.
Athugasemdir


